Íslenski
fjárhundurinn er aðlaðandi, geðgóðir, gáfaðir og hliðhollir. Frábær hundur,
langar þig í einn? Geturu ekki hugsað þér að lifa á eins? Ef þú ert að hugsa um
að bæta Íslenska fjárhundinum í fjölskylduna, eyddu þá smá stund til að vera
viss um að þetta sé rétta tegudnin fyrir þig.
Hér eru nokkrar ástæður til að vilja fá einn:
Ég sá einn á mynd og held að þetta sé fallegasti hundur sem ég hef séð!
Mikið rétt þetta er mjög falleg tegund, en ekki gleyma að þetta er hreinræktuð tegund en ekki eru allir nákvæmlega eins í útliti.Það eru margir litir sem hægt era ð velja út: Svartir, gráir, mórauðir og gulir, allt frá kremlituðum til rauðbrúns lit en ávalt fylgir hvítur sem aðallitur. Svo er það feldurinn, allir munu þeir hafa tv-faldan feld, þeir MUNU fara í feldskipti, sem hefur í för með sér REGLULEGA umhirðu. Eins er munur á feldinum, sem er lengdin, til eru snöggir, meðal sídd og lubbar.Hver og einn hefur hefur sína aðlaðandi hlið og ættir þú að velja þann sem þér fellur best. Annað sem þú þarft að hafa í huga er sá ég hund eða tík? Það er munur á milli kynja þegar við tölum um útlit. Kanski vildirðu tík en draumahundurinn var hundur. Vertu viss!
Ég vil fá hund sem er góður með börnum.
Sannleikurinn er sá að Íslenski fjárhundurinn er frábær félagi fyrir börn. Sannleikurinn er sá að vel þjálfaður íslenskur fjárhundur er frábær félagi fyrir, en það þýðir ekki að þarft ekki að kenna barninu hvernig á að haga sér innan um hunda og koma fram við þá. Eins Þýðir það ekki að þú þarft ekki að vera viss um að hvolpinum líði vel og finni sig öruggann innan um þau. Það er of auðvelt að særa ungan hund og gera hann feiminn við börn, ef ekki er komið rétt fram við hann. Að þessu sögðu hef ég ekki heyrt um né séð íslenskann fjárhund sem ekki elskaði börn.
Ég elska þessa yfirvegað skapgerð!
Flestir íslenskir fjárhundar eru náttúrulega yfirvegaðir, rólegir og hljóðir innanhúss. Sumir GELTA meira en aðrir, en ,eð ákveðinni þjálfun munt þú eiga hund sem þú getur lifað með í mörg ár. Ég hef heyrt að sumir ræktendur geti sagt til um hvaða hvolpur mun tjá sig meira en aðrir, spurðu ræktandann. Vertu sannur sjálfum þér um hvað það er sem þú leitar. Ef þú býrð í borg er kanski betra að fá náttúrulega hljóða tík heldur en orkumikinn og yfirráðamikinn hund. Ef þú býrð í sveit eða villt góðan viðvörunnar hund þá gætiru beðið um þann sem tjáir sig meira en hinir.
Ég elska þennan mjúka feld.
Þú hefur rétt fyrir þér – Vel hirtur íslenskur fjárhundur er krúslegsti hundur sem þú finnur – en hundurinn þarf að vera vel hirtur til að líta þannig út. Að viðhalda fullorðnum íslenskum fjárhund þarftu nokkra klukkustundir á mánuði. Það verður að vera gert í hverjum mánuði án undantekningar. Góðu fréttirnar eru að íslenski hundurinn þarf ekki á baði að halda til að lykta betur eða vel. Þeir eru “arctic” tegund, sem þýðir að feldurinn heldur þeim hreinum og vel hirtur reglulega mun fitan í feldinum fer um hárin munt þú vera með æðislega fallegan hund. Ekki gleyma að hundurinn fer í feldskipti tvisvar á ári, vor og haust. Undirfeldurinn mun falla eins og snjókorn, hugsaðu um það?
Þeir eru nokk dýrir. En ef ég safna, gæti ég keypt einn..
Að kaupa hund er aðeins byrjunin. Sprautur, regluleg heimsókn til dýralæknis, matur, hálsólar og taumar, burstar, rúm og kanski hundaskóli, girðingar munu einnig vera kostnaður sérstaklega fyrsta árið. Vertu viss um að þú getir haldið uppi öllum þessum kostnaði og kaupkostnaði, áður en þú leggur á þig skuldbindingu fyrir næstu ca. 15 árin.
Mér finnst frábært hve hliðhollir þeir eru. Mig hefur alltaf langað í hund sem dýrkar mig mest að öllu í heiminum.
Íslenski fjárhundurinn eru mjög hliðhollir hundar, og munu dýrka þig meira en allt annað, en mun einnig biðja um knús frá ókunnugum og viljugir fara í göngutúr um hverfið með krökkunum í kring. Þeir eru frábærir fjölskylduhundar og þó þeir hafi sérstaka persónu í lífi þeirra, munu þeir elska að vera með öllum. Ef þú villt hund sem er “einnar manneskju hundur” er þetta ekki rétta tegundin fyrir þig.
Ég er mikið á hreyfingu, ég elska langa göngutúra, tjalda og halda mér í formi með því að hlaupa á hverjum degi
Íslenski fjárhundurinn er frábær miðlungs vinnuhundur og voru alder fyrir mótstöðu, en þeir þurfa að fá að eldest – extra stress á vaxandi bein getur verið góður bendill fyrir Mjaðmalos. Og ekki má gleyma að ekki fara með þá í erfiðar göngur né hlauð meðan beinin eru að vaxa, og ættu ekki að vera að hoppa þar til þeir hafa náð tveggja ára aldri. Ef hvolpurinn er fæddur að foreldrum sem ekki hafa Mjaðmalos og þú gefur honum tíma til að vaxa í rólegheitum, gefur rétt fæði og af góðum gæðum sem mun halda honum í góðu formi, er mjög sennilegt að þú munir eiga góðan félaga næstu 10 til 15 ár. Leyfðu honum bara að vaxa!
![]()